Hæ nýtt....
Við erum búnir að gera fullt af nýju dóti og erum að fara að bæta textum með t.d. Green Day og BassHunter
Það merkilega er að Steven fer í liðið í stöðu hægri kantmanns! Svo segja menn hann sé ekki góður í þeirri stöðu! Reyndar ber þess að geta að það var aðeins hægt að velja Steven í þessa stöðu. En hann er að minnsta kosti talinn sá besti í þessari stöðu af þeim sem tilnefndir voru.
Evrópulið ársins 2006 er annars skipað þessum leikmönnum.
Gianluigi Buffon (Juventus)
Gianluca Zambrotta (Barcelona)
Fabio Cannavaro (Real Madrid)
Carles Puyol (Barcelona)
Philipp Lahm (Bayern Munich)
Steven Gerrard (Liverpool)
Cesc Fabregas (Arsenal)
Kaká (AC Milan)
Ronaldinho (Barcelona)
Thierry Henry (Arsenal)
Samuel Eto'o (Barcelona)
Sem fyrr segir þá er þetta annað árið í röð sem Steven Gerrard er valinn í þetta lið. Þeir Carlos Puyol, Ronaldinho og Samuel Eto'o voru líka í liðinu sem valið var fyrir ári. Sanz Luis Garcia var þá valinn í liðið. Í þessari sömu kosningu var Frank Rijkaard, þjálfari Evrópumeistara Barcelona, kjörinn þjálfari árins 2006.